Live Fast, Have Fun, Be A Bit Mischievous

fimmtudagur, 21. mars 2013

I Remember It All Too Well!

Já hæ!
Ég hef ákveðið að eyða þessu yndislega fimmtudagskvöldi í að skrifa blogg. Ekki að mér finnist gaman að því en þússt, I'm doing it for the people eða eitthvað þannig ;)

Titillinn í blogginu er btw tilvísun í All too well með Taylor Swift, ég er ekki að meina að ég muni hvað ég er búin að vera að gera því það geri ég sko alls ekki!

Rakel semsagt kom til mín fyrstu vikuna í mars. Sú vika var snilld! Lentum meðal annars í því að verða fyrir mandarínubörkakasti, fórum í kjólum til Lyon og komumst að því að Starbucks starfsmenn eru ekkert að fíla íslensk nöfn eins og Þjóðhildur. Við fórum líka á skauta með nokkrum af Afs stelpunum hérna. Það gekk vel. Vil taka það fram að ég var held ég 10 ára þegar ég fór síðast á skauta. Leitin af skautahöllinni gekk líka skrautlega. Löbbuðum svakalegan hring í kringum Valence í örugglega klukkutíma, komumst svo að því að skautahöllin var bara þarna í 10 min fjarlægð eða eitthvað :s Svo var líka búð sem stóð framaná að þau seldu Ben&Jerry's ís, en svo bara gerðu þau það ekki.. Lygarar!!!

Við bökuðum líka kökur. Eða vandræði eins og sumir mundu örugglega kalla það. Vorum með 2 kökur á hold í einu útaf við áttum ekki bökunarpappír fyrir marengsinn og ekki egg fyrir sukkulaðikökuna. En þetta bragðaðist svona lika rosalega vel eftir allt vesenið. En svo fór Rakel og ég var það almennileg að fylgja henni til Lyon þar sem við borðuðum á svaka spes stað. Bara svona miðaldra karlmenn í flíspeysum að vinna þar.. það yrði pottþétt ekki leyft heima ef femínistafélag íslands eða whatever hefði eitthvað með það að segja. Við erum samt vissar um að þessi staður breytist í strippstað á kvöldin. Ég var líka það yndæl að bíða með Rakel þangað til að lestin hennar kæmi upp, og á meðan sáum við svaka heavymetal kall og dóttur hans eða mjög unga kærustu sem héldu á skilti að bíða eftir fólki en það vildi enginn koma til þeirra. Rakel var líka alveg að fíla alla stráka athyglina sem 'hún' fékk hérna, ekkert lítið af bílum sem stunda það að flauta hér ;)

 Svo verð ég nú líka að minnast á það þegar 'sumir' voru aðeins að kíkja á Rugbykappana í gegnum litla holu á ógeðslegum vegg. Íslenskar stelpur í hnotskurn. Ég stóð þarna og beið á meðan að Rebbinn kláraði af sér og sé ég ekki ljótustu og ógeðslegustu könguló í heimi. Ég geri auðvitað það fyrsta sem heilvita manneskja gerir þegar hún sér könguló, sem er að öskra ógeðslega hátt og hlaupa í burtu! En þá heyrast svakaleg óhljóð í Rakel og hún hleypur ca 100 metra í burtu, snýr sér svo við og spyr mig; 'Afhverju varstu að öskra?' Hún er pínu slow greyið.. En það var samt gaman að hafa hana.
Þegar ég sagði skiptinemavinum mínum þessa sögu gerðu þau bara grín af mér að vera hrædd við einhverja litla könguló, en hún var sko bara ekkert lítil. Hún var allavegana 5 cm eða eh og fyrir mér er það stórt! Ekki mér að kenna að þau séu öll frá heitu löndunum og ég sé bara lítill íslenskur víkingur sem hatar allan svona viðbjóð.

Í síðustu viku byrjaði svo skólinn aftur.. oh joy. Get ekki sagt það að ég sé að dúxa í skólanum hérna, þótt ég hafi nú reyndar fengið 0.5 í prófi um daginn. Mjög stolt af því, frekar gott miðað við að hafa gleymt orðabókinni heima. Gleymdi henni svo reyndar aftur á þriðjudaginn og þá var landafræði próf þar sem flestar spurningarnar voru skilgreiningar á orðum sem ég hef bara aldrei séð áður.. Það verður gaman að fá þá einkunn. Orðabókin er btw komin ofan í tösku núna. Reyndar þá erum við bekkurinn að taka þátt í eh smásögukeppni eða eh þannig, í ensku. Ég og Merilin (Eistland) og Vicky (Nýja-Sjáland) megum keppa um eitt pláss í þessari keppni þar sem við erum betri en hinir í ensku, (bekkurinn má senda 3 sögur í aðalkeppnina) og við skiluðum um daginn svona drafti af sögunni og ég get sagt ykkur það með stolti að kennarinn kommentaði minna á mína sögu heldur en Vickyar sem er enskumælandi! Djöfull ætla ég að rústa þessari keppni.. samt ekki þar sem sagan mín er hörmung og hennar er eins og eftir einhvern svakalegan málfræðing með margra ára reynslu í skriftum.

Á sunnudaginn í síðustuviku fór ég á fótboltaleik. Það væri ekki frásögu færandi en vitiði hver var að spila? Enginn annar en David Beckham. Og já, hann er svona sætur í alvöru. Ég á mynd af mér með honum! ;) Leikurinn however, af einhverjum ástæðum þá fékk eitt liðið víti, og það var tekið tvisvar, veit ekki afhverju. Gæjinn skoraði í bæði skiptið en liðið fékk eitt mark. Kanski er eitthvað langt síðan ég horfði á leik eða æfði fótbolta, en ég er nokkuð viss um að það sé ekki þannig á Íslandi. Eftir leikinn vorum við svo föst í umferðateppu í klukkutíma, hreyfðumst ca 10 metra eða eh, það var mesta skemmtunin verð ég að segja. Sérstaklega þar sem að það var enginn bíll á hinni akgreininni og ég veit að hann faðir minn hefði nú ekki verið lengi að smella sér yfir og keyra í burtu.

Í þessari viku er svo búið að vera sól og í kringum 15 stiga hiti á hverjum degi. Get ekki sagt að ég sé að hata það. En ég er aftur á móti alls ekkert að fíla það sem fylgir sólinni. Sem eru pöddur, og geitungar og EÐLUR. OJJJ HVAÐ ER ÞAÐ?? Ef þetta er að fara að breytast í eh skordýra bú hérna í sumar þá er ég komin með fyrsta flugi heim.

Í gær var svo skiptinemamiðvikudagur eins og ég kýs að kalla það. Það felst yfirleitt í því að fara út að borða á Chez Tony sem er alveg frábær skyndibitastaður, og svo velja á milli tveggja kaffihúsa sem eru btw hlið við hlið, til að sitja inná restina af deginum og tala saman. En í gær var öðruvísi. Í fyrstalagi útaf það var sól, og í öðru lagi útaf við vorum að halda uppá afmælið hjá Marinu. Við fórum að borða og svo eftir matinn vorum ég og Isabela rosa lúmskar á því og þurftum að fara á pósthúsið.. sem við fórum reyndar svo á haha. En allavegana þá fundum við um daginn rosa skemmtilega 'dónabúð' eins og systir mín mundi kalla það. Auðvitað var förinni heitið þangað og þar keyptum við afmælisgjöf. Svo vorum við líka rosa sætar og keyptum köku. Marina var ekkert smá glöð með gjöfina haha! Restina af deginum sátum við svo úti í sólinni og ég er ekki frá því að tanstigið mitt hafi hækkað um nokkur stig. Eða þússt ekki..

Í dag var ég svo í badminton í skólanum. Var þvílíkt að vona að það yrði eins og með fótboltann. Að allt í einu yrði ég bara stórstjarna. En nei. Badminton er eitthvað sem ég mun alltaf vera hörmung í, sama hvar í heiminum ég er stödd þá get ég treyst á það. Samt skárra heldur en það sem við erum að fara að gera eftir nokkrar vikur. Hlaup, úti, í 2 tíma, úti.. í sólinni. Óguð ég mun deyja úr ofhitnun og vökvaskorti og bara öllu svona sem íslendingar eru ekki vanir.

ps. Ég sagði badminton ekki tennis! Hellyeah ég er að læra eitthvað hérna!

Ég ætla líka að segja ykkur frá frábærlega símaævintýrinu mínu. Var svo svakalega heppin að lenda í því á mánudaginn í síðustu viku að leggja símann minn á borðið sem við sátum við úti í hádeginu. Snéri mér svo við og hef örugglega olnbogaskotað símann eða eh þannig. Allavegana það næsta sem ég veit er að síminn er á jörðinni með skjáinn niður (iphone) og ég sem tók hulstrið af deginum áður, go Svana.. Auðvitað var síminn brotinn jess mig langaði að gráta. Eyddi öllum deginum með fýlu svip og sagði öllum sem nenntu að heyra um hvernig barnið mitt var lasið.

Á miðvikudaginn í síðustu viku fór ég svo með elsku litla barnið mitt á símaspítalann, sem var reyndar bara eh búlla sem ég var ekki alveg á því að treysta.. Enda treystir maður ekki hverjum sem er fyrir barninu sínu. En ok ég skildi símann þar eftir og við tók erfiðasti klukkutími lífsmíns. Biðin var hræðileg, yrði í lagi með elsku barnið mitt? Veit ekki hvað ég spurði mig þessa spurningu oft. Allavegana þá náði ég í símann og hann virkaði og nýr skjár og læti. Tók svo eftir því eftir smá að skjárinn var hærri öðru meginn og auðvitað pirraði það mig ogeðslega mikið en sjens að ég færi aftir með símann minn þangað! Það endist þangað til í dag þegar ég drullaðist aftur í búðina og í þetta skipti þurfti ég að skilja símann eftir í heila 3 KLUKKUTÍMA! Helvítis skóli. En allavegana fór svo eftir skóla og náði í símann og hann var lagaður og fínn. Kveikti svo á honum og þá vildi simkoritð ekki virka. Omg þá var ég pirruð. reyndi í svona hálftíma með bæði íslenska og franska kortinu en nei. Ákvað þá að fara aftur í búðina í 3. skiptið og sagði eins og hálfviti á minni frábæru frönsku 'síminn minn virkar ekki'. Heyrðu nei, þá virkaði síminn bara ekki útaf það átti eftir að réttstilla klukkuna og ég var nottla alltof löt til að gera það áður. Heimskulegt right? Ég labbaði bara útúr búðinni eins og fífl, kallinn þekkir mig örugglega núna og ég ætla aldrei aftur inní þessa búð. Einsgott að ég sé ekki ennþá ljóshærð, því þá væri þetta sko ljóskulegt.

Á morgunn byrja ég svo ekki í skólanum fyrr en klukkan 2! Vanalega byrja ég klukkan 1 en núna er eh breytingar eins og alltaf. Ég elska að geta sofið út 4 daga í röð hérna. Ég semsagt byrja í skólanum klukkan 11 á mánudögum, 8 á þriðjudögum og miðvikudögum (ó það sem ég hata þriðjudaga mikið), 9 á fimmtudögum og svo 1 á föstudögum. Get samt nokkurnveginn fullyrt það að ég mundi alveg bítta á því að mæta í skólann klukkan 8 á hverjum degi ef ég mætti sleppa frönskutímum, þá sérstaklega þessum 2 tíma löngu þar sem kennarinn gjörsamlega analyzar einhverja fornalda texta í rætur.

Ég átti að sjá um matinn um daginn útaf það var bara ég og 3 litlu hostsystur minar heima. Keyptum bara pizzadeig útaf ég get ekki eldað til að bjarga lífi mínu. Allavegana þá var ég bara eh að græja pizzuna og kalla á stelpurnar til að spurja hvað þær vilji á, ákveð svo bara að setja bara það sem ég vil útaf þær voru ekki að nenna að svara mér. Setti bara skinku pepperoni kjulla og þannig venjulega hluti. En svo kemur 14 ára hostsystir mín og stendur fyrir aftan mig og horfir á mig eins og ég sé bara furðulegasta manneskja í heiminum. 'Ætlaru að blanda öllu kjötinu saman??' Hefðuð svo átt að sjá svipinn á henni þegar ég opnaði rjómaostinn.. Ég sem hélt að frakkar væru allir í ostinum. Þeir geta bara átt sig með sínar pizzur með eggjum og lauk, og KARTÖFLUM. Sorry en oj.

Ég reyndar eldaði með Rakel hérna um daginn. Það var alveg ljúffengt. Kunni ekki alveg að gera sósu en hellti bara rjóma þangað til að þetta fór að looka. Bætti svo við smá ekki nógsoðnum hrísgrjónum og kartöflum og kjöti og henti í skál. Þetta var bara besti matur sko.. þússt ef þú ert að smakka mat í fyrstaskiptið eða eitthvað þannig.

En vá, í dag þá var ég inná bókasafni og það voru svona landakortafræðibækur um evrópu, og það var ein bók sem var um norðurevrópu. Ég opnaði bókina en nei þá er Ísland bara ekkert í henni. Hvað er það? Ekki nóg með það að Ísland sé ekki í bókinni, nei þá sko ERU Færeyjar í bókinni, uu ha? Færeyjar er ekki einusinni alvöru land. In the defence of the book þá var þetta útgefið af evrópusambandinu eða eitthvað þannig og Noregur var ekki heldur þarna, en common, maður gefur ekki út bók um Norður Evrópu og sleppir aðallandinu, það ætti að setja reglur um svona hluti.

Um helgina er ég svo að fara á Afs helgi sem verður fjör og svo eftir 3 vikur þá fer ég í næstum mánaðar frí! Afhverju næstum, já það er afþví að sko það er frí í skólanum 20 apríl - 5 mai. En þar sem ég er svo alltof góð í frönsku og þannig þá þarf ég ekki að taka Bac Blanc prófin, sem eru æfingarpróf fyrir lokaprófin, og þá fer ég í frí 14. apríl. Svo eftir fríið, þá er skóli í 2 daga (mánud og þriðjud) og svo frí þangað til á mánudaginn í vikunni eftir. Þannig það verður ljúft. Er svona að plana hvað ég ætla að gera, skrifa um það í næsta bloggi.

Og já það var sagt við mig mikið áður en ég fór að það væri vond lykt af frökkum og þannig, vildi bara segja ykkur að það eru flestallir með svitasprey í töskunni sinni og hika ekkert við að spreyja bara eins og hálfum lítra á sig inná milli tíma.

C'est La France 

kveðjustund :///

<3

meðidda

fótbolti




En núna ætla ég að kveðja ykkur kæru lesendur mínir. Ég mæli sterklega með því að þið skiljið eftir eins og eitt fallegt og sætt comment hérna fyrir neðan.. Má reyndar alveg vera stórt og ljótt líka ef þið viljið.

Og ef það er mikið af tölvuheftu fólki að lesa þetta og kann ekki að commenta. (MAMMA) Þá er svona thingy fyrir held ég neðan þar sem maður skrifar commentið, og þið veljið 'Anonymous' þar. En það á samt að setja nafnið sitt þá í commentið svo að þið lookið ekki bara eins og eh creep.

Njótiði páskafríisins þarna heima þar sem ég fæ ekkert páskafrí! Megið endilega senda mér páskaegg ef þið eigið auka, og líka ef þið eigið ekki auka, þá getiði bara splæst í eitt handa mér ;)

Sjáááááumst!!!

ps. Kem víst ekki til Íslands fyrr en 8.júlí, leiðinlegt fyrir ykkur.


















8 ummæli:

  1. Geggjaaað blogg, gaman að sjá hvað þú ert að gera í útlandinu!
    Kv. Hildur frænka(ekki creep þar sem ég setti nafn) :D

    SvaraEyða
  2. Dúllumús.. ég öfunda þig doldið rosa allrof ''þú veist hversu mikið'' að eiga mynd af þér með David Beckham.. gott það sé gaman hjá þér litla ljóska og hættað væla yfir einhverjum pöddum þú ert með hitan annað en við haha. havefuuunn;**
    -LuuvSaraDís

    SvaraEyða
  3. halloo þvilikt skemmtilegt blogg ;)
    haha og lika voða gaman að lesa um það hvað þú sért æði góð í skólanum... þú ert bara að fá verri einkannir en ég og þá er mikið sagt ;) haha
    nyja sjalandar gjellan hljomar lika æðislega eru þið ekki bff's? hehhee og þúst hvað er að frökkum ?! kartöflur á pizzu WHAT ! það er bara ogeð ... og gerðu það fyrir alla .. ekki elda meiri mat.. ég vorkenni þeim sem þurfti að éta ehv sem þú eldaðir ;) nema kökur, þú gerir góðar kökur. og ef ég a að splæsa á þig páskaeggi hvernig væri þá að splæsa á mig eitt stk lyklakippu ?!!!! pff þú ert ekkert að standa þig.. og i sambandi við miðvikudagakaffihusahittinginn hja ykkur krökknunum... sittu á móti ... ;) hoh ohoho :) fyndiiin éééég hahahaa
    held ég þurfi ekkert að skrifa hver eg er ... er nu þegar stalker hja þér og öllu, þarna uti might aswell be a creep...
    ok bæjoo

    SvaraEyða
  4. Takk fyrir flott blogg skvísa. Ef það er eitthvað sem þú ert lagin við þarna er það það að láta þér ekki leiðast. Ótrúlega dugleg að gera eitthvað og hitta fólk.
    Það fór nú aðeins um mig þarna í símasögunni en mikið er gott að allt fór vel á endanum ;)
    Knússer yfir landamærin my dearest.
    lúv
    Svandís

    SvaraEyða
  5. Hvað meinarðu krakki!! ég er ekkert tölvuheft... lengur. Hlakka mikið til að fá þig heim og sjá þessa leyndu eldunar hæfileika :-) þú mátt elda á miðvikudögum.
    En annars skemmtilegt blogg hjá þér, sé pabba þinn í anda að hanga í einhverri bílaröð. Ekki vera að leita af pöddunum, það sem maður sér ekki, veit maður ekki.
    Stórt knús yfir til þín... þín uppáhalds.
    Mamma.

    SvaraEyða
  6. Þú ert frábær frænka mín.
    Bestu kveðjur til þín.
    Inga afasystir.

    SvaraEyða
  7. Það er alltaf jafn yndislegt að lesa bloggið þitt. Nú styttist verulega í að við fáum þig heim,svo nú er að njóta verunnar í botn.Gaman hvað þú ert búin að fá mikið ævintýri með náminu.Hafðu það sem best,kveðju frá okkur afa.(amma Svana) Er aðeins að koma til í tölvu,ha.ha.ha.

    SvaraEyða
  8. Lífinu fylgir mismunandi reynsla. Ég veit ekki hvað þú skorar á þig núna en ég fullvissa þig um að Dr White er rétta lausnin, þetta er stuttur vitnisburður minn. Ég er ánægður með að skrifa þetta vegna þess að ég fæ aftur frið í hjónabandi mínu, allt þökk sé frábærum manni að nafni Dr. White, hann hefur öflug töfrahjól sem hjálpa til við að samræma deilur milli mín og eiginmanns míns, maðurinn minn fór að heiman og bjó með öðru kona í 7 mánuði án þess að hugsa um mig og 4 ára dóttur okkar, fjárhagslega hef ég það gott vegna þess að ég er bankastjóri en ég þarf blíða umönnun mann en maðurinn minn er hvergi nærri, ég bið hann að koma nokkrum sinnum heim en hann gerir það ekki ekki gera neitt, ég bað meira að segja eldri bróður sinn um að hjálpa mér. Ég las vitnisburð manns sem lýsti því hvernig Dr. White hjálpaði til við að koma í veg fyrir að kona hans skildi við ástarsöguna, svo ég tók samband hans og útskýrði vandamál mín fyrir honum, hann sagði mér hvað þarf til að elska álög og ég gaf honum fjármálin til að versla í þrjá daga og maðurinn minn kom heim, allt þökk sé þér Dr White. Hafðu samband við hann til að fá hjálp: / WhatsApp: +17168691327: eða Netfang: wightmagicmaster@gmail.com: ef þú ert með tengsl eða lífsvanda hefur hann alls kyns galdra, til að lækna veikindi, skila fyrrverandi, til að sameina hjónaband þitt á ný, til að fá gott starf til að skila aftur týndum peningum þínum og annarri lausn.

    SvaraEyða