Live Fast, Have Fun, Be A Bit Mischievous

föstudagur, 14. desember 2012

Lyon o.fl.

Haaallo!!

ég er i skolanum i skolatolvu thannig eg vil bydja ykkur um ad afsaka stafsetninguna mina. ég mundi afsaka mig fyrir bloggleysi en àstaedan fyrir tvi er einfaldlega su ad eg nenni ekki ad blogga.

En nuna er eg i skolanum og a eiginlega ad vera ad gera islandskynningar verkefni nema eg gleymdi usb lyklinum thannig eg gerdi bara eh sma og svo set eg thad saman thegar eg kem heim. I dag er frekar stuttur skoladagur, thannig sed. Er i gati fra 8-10 en tharf samt ad maeta i skolann til ad hanga a bokasafninu. Svo fer eg i stae og efnafraedi; svo er 1.5 tima hadegismatur og svo myndmennt. Er svo buin i skolanum kl 15:20 sem thykir snemmt i Frakklandi. Skolinn herna er samt alveg hundleidinlegur og mer leidist thvilikt mikid i timunum. En tha er nottla gott ad skemmta ser vid ad teikna fallegar myndir eda aefa sig ad skrifa nafnid sitt aftur og aftur med vinstri, kem orvhennt heim ;) Svo er ekkert ad hjalpa hvad eg er i ogedslega leidinlegum fogum sem eg hef null ahuga a. En eg er enntha ad reyna ad skipta um bekk og fae thad vonandi nuna.. thad er buid ad neita mer tvisvar :/ Ok eg samt get reyndar ekki postad thessu fyrr en eg kem heim thannig ad eg er ekki lengur i skolanum thegar ad thid lesid thetta.

En eg aetla ad haetta ad skrifa um skolann nuna og fara ad skrifa um eh skemmtilegt. Eins og Lyon!! Eg elska Lyon!!!

Sidustu helgi; a laugardaginn for eg a Fete des lumieres med Afs sem var thvilikt gaman. Eina slaema var ad eg thurfti ad vakna klukkan 7 tvi Isabela og hostmamma hennar og David komu ad saekja mig kl 8. Svo keyrdum vid a lestarstodina og forum i lest og hittum alla hina krakkana sem vid erum ekkert buin ad hitta sidan i oktober. Get samt ekki sagt ad thad hafi verid gaman i lestinni, folk sem hefur farid med mer i herjolf, bil og rutur veit afhverju ;) Svo komum vid til Lyon og byrjudum a tvi ad fara i mallid sem er btw huuuuge. Var ekkert ad hata thad. Keypti mer samt bara peysu og bol utaf eg nennti ekki ad halda a poka allan daginn. Attum ad hittast oll aftur klukkan half 12 thannig eg og Carissa hlupum alveg i gegnum Bershku en hefdum ekkert thurft thess thar sem vid vorum maettar fyrstar.
Forum svo med metro i downtown Lyon og lobbudum thar i gegnum baejinn og a eh Jolamarkad sem var kul. Eg samt keypti ekki neitt thar nema bara ad borda. Alltaf svo dugleg ad spara ;P Heyrdu ju vid keyptum okkur heitan djus sem var frekar spes og ekki godur. Tok bara helling af myndum i stadinn.

Eftir ad hafa farid a markadinn lobbudum vid upp tvilikt skemmtilegar brekkur sem allir voru ad kvarta utaf, nema nottla eg utaf eg er svo von ad labba nanast uppa helgafell thegar eg labba heim ;) Komum svo ad eh kirkju sem eg var reyndar buin ad sja adur og thar var eh kall ad segja okkur uta hvad thessi ljosahatid gengur; og eg meirasegja skildi thad!!!
Semsagt thad var thannig ad Maria mey bjargadi Lyon fra fullt af hlutum fyrir milljon arum og nuna a hverju ari er haldid thessa hatid til ad thakka henni fyrir.. Eins og thid sjaid tha er eg mjog ahugasom um thetta. Lobbudum svo inni kirkjuna sem var tvilikt stor og flott og thad var svona confessions daemi thar haha.
Svo forum vid aftur ut i kuldann, eda thusst kuldan fyrir alla hina.. Ekki thad ad eg hefdi vidurkennt thad ef mer hefdi verid kallt. Er ekki islendingur fyrir ekki neitt sko!! Mer finnst samt lumskt gaman ad tvi thegar folk fra heitu londunum er ad kvarta utaf kulda.

Svo lobbudum vid aftur nidur og tha var eh ludrasveit ad spila og vid vorum ad horfa a thad og svo alltieinu vorum vid farin ad gera eh svaka hokipoki dansa eda eh og annad folk for ad joina okkur :s Sidan var komin dimma thannig vid heldum af stad fyrir framan eitt hus sem ljosashowid atti ad vera a. Og shit hvad thad var mikid af folki. Thad voru sko 4 milljonir tharna plus folkid sem byr i Lyon. Fannst ekki gaman thegar folk var alltaf ad segja vid mig; ' hey Svana thad er bara eins og allt Island og rumlega thad se a thessari gotu' En allavegana tha voru goturnar trodnar og vid thurftum oll ad leidast og trodast i gegnum alla. Vorum ca 15 held eg i kedju og thad var mjog gaman ad sja thegar folk var ad pirra sig yfir tvi ad geta ekki komist i gegnum okkur. Svo komum vid ad husinu og thad var tvilikt flott show og eg tok fullt af myndum. Sidan thurftum vid ad fara a 2 adra stadi og thad var sami skemmtilegi trodningurinn.

Horfdum a 3 svona show og tha voru allir ad deyja ur hungri og i loppunum eftir ad hafa labbad allan daginn an thess ad setjast nidur. Tha tok vid leit af stad sem vid gaetum bordad a. Thad gekk vel. Lyon var trodin og vid vorum i kringum 15. Sem thyddi bara eitt, vid lobbudum svong og ad deyja i loppunum utum alla Lyon i orugglega 2 tima thangad til ad vid endudum aftur a markadinum thar sem vid bordudum eh ogedslega vont braud med lauk. Hvad er malid med Frakka og troda lauk i bokstaflega ALLAN mat??
Svo forum vid bara a lestarstodina og satum ogedslega daud eh a golfinu thar i halftima adur en vid tokum tvilikt trodna lest heim.

Var svo komin heim til min um 1 leytid ogedslega threytt. Thetta var samt gedveikt skemmtilegur dagur med frabaeru folki og eg tok fullt af myndum sem thid getid skodad a Facebook.

En svona til ad segja adeins fra fjolskyldulifinu her tha er hostamman i heimsokn nuna og eg held ad hun hafi verid fengin hingad til ad baka smakokur haha hun er allavegana voda dugleg i tvi.
Eg atti lika afmaeli um daginn og tha forum vid ut ad borda a eh austurlenskum stad sem var fint og eg smellti loksins i mynd af fjolskyldunni. Forum lika a sunnudaginn i failada verslunarferd. Forum a eh stad thar sem var allt lokad, endudum svo bara i supermarkadinum i svona ca 2 klukkutima thar sem eg gat haldid pianotonleika a dotapiano :) Thau eru lika buin ad skreyta sma i husinu; komid jolatre sem er skreytt med eplum og svo bla blikkserja sem blikkar mikid. Mamma, eg mun aldrei aftur bidja ykkur um ad kaupa blikkandi jolaljos. Aldrei.

Svo er bara buid ad vera brjalad ad gera i skolanum; eda thusst fyrir alla nema mig. Eg reyndar a ekkert neitt mikid af vinum i skolanum thar sem ad folk herna er ekkert mikid fyrir ad reyna sig i enskunni eda ad gera ser grein fyrir tvi ad i flestum tilvikum get eg skilid thau ef thau tala fronsku haegt. Reyndar i gaer voru tvaer stelpur ad tala vid mig med  hjalp google translate; thad meikadi 0 sens en eg skildi allt sem thaer skrifudu a fronsku til ad thyda haha :s Kennararnir herna eru lika eh litid ad skipta ser af mer; nema um daginn thegar sogukennarinn spurdi sessunaut minn hvort eg vaeri i simanum, sem betur fer sagdi hann nei tvi eg er pinu hraedd vid thennan kennara; hann er alltaf ad oskra.

Eg er lika alveg ad meika thad thegar eg tharf ad gera eh i timum; for i efnafraediprof um daginn sem eg vissi ekki neitt. Eda ju eg vissi eitt svar; a islensku og ogedis ordid var ekki i ordabokinni. Svo for eg lika i stae prof um daginn thar sem eg skildi svona 30% eda eh og bulladi bara hitt, staerdfraedi ord eru ekki heldur i ordabokinni. Svo eru lika allir herna med rosa fancy gamaldags skrift sem eg a erfitt med ad skilja thar sem stafirnir 's-r-n-i-e-m' eru allir skrifadir eins; og i stae profinu voru einmitt nokkur handskrifud daemi sem eg sleppti.

En ja i skolanum er eg ekkert mikid ad tala thannig theegar eg hitti Afs krakkana tha tek eg thad algjorlega ut a theim og tala lang mest og lang haest af ollum. Eins og a midvikudaginn. Vard naestum fyrir bil thegar eg var ad reyna ad lata thau koma i thrautakong uta gotu. Eda eins og i Lyon thegar eg byrjadi ad syngja 'Vakna' latabaejarlagid aftur og aftur. Ollum fannst thad gaman, en nuna allavegana kunna fullt af utlendingum ad segja vakna :) Thau eru samt frabaer og vid erum oll ordin godir vinir, svo eru lika islensku stelpurnar sem eru herna; thott thaer seu langt i burtu tha erurm vid ordnar godar vinkonur og eg get bara sagt eitt. Thaer eru one of a kind og eg get ekki bedid eftir parisarferdinni sem vid erum ad plana hahah.

A morgunn er eg svo ad fara til Lyon med David og Isabelu (usa og brasilia) og vid erum ad fara ad versla!!! aaaahh eg hlakka til!!!!! Tokum straeto klukkan 10 a mrg og lest heim ehtiman um kvoldid. Einsgott ad eg se ekki ein tvi ad eg hef ekki hugmynd um hvernig thetta straeto og lestarbull virkar. Eg veit ekki einisinni hvernig madur a ad borga, og thad er buid ad gera mikid grin af mer fyrir thad :s

Um jolin fer eg svo til Alsace sem er i nordur Frakklandi vid landamaerin a Thyskalandi thar sem Strasbourg er og verd thar med allri storfjolskyldunni i eh sal og eg er ekki alveg viss hvernig jolin herna virka thannig thetta verdur eh skrytid. Eg og Sophie tokum svo lest heim 31. des klukkan hvorki meira ne minna en 5:55. Godan daginn! En um aramotin fer eg i eh Afs planad party og thad verdur vonandi bara gaman ef allir koma :)

En nuna er eg ad fara annad hvort i stae eda efnafraedi, hendi thessu inn thegar eg kem heim, og kanski myndum lika ef eg er i studi till thess. Annars er eg buin ad taka helling af myndum og eh litill partur af theim er a facebook thannig thid getid bara skodad thar.

Og ja ef thad er eh framtidarskiptinemi ad skoda thetta og hefur spurningar tha meigid thid endilega hafa samband; her eda a fb eda eh; eg gerdi thad allavegana thegar eg var fyrst ad paela i ad fara ut :)

En ok thetta er ordid gott, skrifa kanski a milli jola og nyjars

Gledileg Jol allir!!! Joyeux Noël tout le monde!!!!

Ps. Var að fá að vita að ég skipti um bekk á mánudaginn!!! :D

sunnudagur, 18. nóvember 2012

Einkaskólar eru ekkert fancy.

Góðan daginn :)

Okei ég er búin að vera að reyna að byrja þetta blogg í pínu langan tíma núna en veit ekkert hvar ég á að byrja eða hvað ég á að skrifa. Held að ég verði að skrifa á hverjum degi hvað ég geri svo ég gleymi því ekki þegar ég loksins nenni að gera blogg. Afhverju get ég ekki bara hugsað hvað ég ætla að skrifa og svo birtist það magically í tölvunni, þá þarf ég ekki að skrifa það. Ætla allavegana að reyna að muna eittthvað skemmtilegt sem að ég get deilt með ykkur.

Síðustu dagana í fríinu fór ég t.d. í bíó með Sophie og Estelle og kærastanum hennar á myndina Looper og ég hef ekki hugmynd um hvað sú mynd var. In my defence þá skyldu þau heldur ekkert mikið hvað var í gangi. En bíóhúsið sem við fórum í er í Valence og það er huge. Skellti mér svo í strípur og var í stresskasti allan tíman um hvort að ég mundi enda með grænt hár eða eh en svo endaði það bara alveg eins og þegar ég fer heima. Reyndar notaði konan ekki álpappír heldur lét bara eh svona spýtu undir hárið og málaði á hana og lét svo hárið bara vera þannig. Þetta tók 4 klukkutíma. Fun.




Síðustu helgi fór ég svo á 2 markaði. Einn í bænum mínum og það var verið að selja svona local vörur eins og ávexti, marmelaði og auðvitað osta og vín og fleira þannig. Og snigla. Oj. Hinn markaðurinn var svo í bæ hérna í hálftíma fjarlægð með miklum 'S' vegum sem er uppáhalds fyrir bílveikt fólk. Þar var aðallega verið að selja epli og svo líka eitthvað annað drasl. Við fengum svona epli sem er búið að láta sykur utan um og heitir ástarepli eða eh þannig. Það var þvílíkt mikið af fólki þarna og markaðurinn var í gegnum allan bæinn og við þurftum að leggja bílnum lengst útfyrir bæinn. Fólk gat líka tekið eplataxa til að þurfa ekki að halda á eplunum ef það var að kaupa marga kassa.


Á mánudaginn byrjaði ég svo í skólanum. Ég bjóst við þvílíkt fancy skóla með öllum flottasta búnaðinum og þannig þar sem þetta er einkaskóli. En nei þá er þetta frekar gamall skóli sýnist mér og ekkert inní stofunum nema stólar, borð og krítartafla. Reyndar er ég í svona Lab í einum líffræði tíma þar sem eru einhver tæki á borðinu sem ég reyndi að snerta sem minnst til að skemma þau ekki.

Annað en í skólanum í Normandie þá vissu allir kennararnir mínir hérna að ég væri að koma og hvað ég héti sem var fínt því þá þurfti ég ekki að útskýra fyrir þeim að ég skildi ekki neitt. Sumir kennararnir meirasegja þýddu fullt fyrir mig með hjálp bekkjarins þar sem að ekki allir kennararnir mínir tala ensku. Þýsku kennarinn minn var meirasegja svo almennileg að skrifa niður fyrir mig lista af enskum-frönskum-þýskum orðum þegar ég sagði henni að ég kynni ekki orð í þýsku.

Stundataflan mín er mjög flókin. Mjög. Það stendur aldrei hvaða stofa er og stundum erum við í aðalstofunni og stundum ekki. Svo er eitthvað heimavinnu herbergi sem allir fara í þegar það falla niður tímar og oftar en ég veit ekki ástæðuna fyrir því alltaf. Þar eiga allir að vera að læra og það er yfirleitt kennari þar en þegar það er enginn kennari þá lærir enginn. Var þar á þriðjudaginn að tala við eh krakka úr bekknum mínum þegar ég heyri eina stelpuna allt í einu segja Eyjafjallajökull á mjög vitlausan hátt. Ég gat ekki annað en hlegið. Mikið. Ég veit, ég er vond. En svo var ég almennileg og kenndi þeim að segja það rétt, ekki að það hafi tekist vel.

Bekkurinn minn er voða fínn þótt þau séu öll 2 árum yngri en ég, þau tala við mig og svoleiðis. En ég er í hörmungarfögum, aðallega náttúrufræði/vísindi/líffræði eða whatever og stærðfræði. Þannig ég fór á föstudaginn og spurði hvort það sé hægt að færa mig í Premiere (96) eða Terminale (95) svo að ég geti valið mér braut og verið í bekk með fólki á mínum aldri. Ég fæ líklegast að vita á morgun hvort það sé hægt eða ekki. Skólinn hérna er samt þvílíkt langur, yfirleitt til 5 eða 6 á daginn. Nema á miðvikudögum, þá er ég alltaf búin 12.

Bærinn minn, Annonay og annar bær, Davezieux eru eiginlega fastir saman og ég bý svona í miðjunni frá báðum miðbæjunum. Á föstudaginn féllu niður tímarnir eftir hádegi hjá mér þannig þá var ég búin klukkan 12. Ég ætlaði að hitta eh af hinum skiptinemunum niðrí bæ en þau komust ekki þannig ég ákvað að fara bara samt niðrí bæ ein. Ákvað að fara fyrst til Davezieux að skoða eh í búðum og svo í miðbæ Annonay til að fara á pósthúsið. Þetta lookar allt voða nálægt hvort öðru í bíl. Ég byrjaði svo að labba og eftir 20 minutur var ég komin til Davezieux. Svo ætlaði ég að fara til Annonay og hélt það yrði ca 10 minutna labb en neinei var í rúmlega hálftíma á leiðinni þangað. Ætlaði að fara í smástund haha. Kíkti svo á google maps þegar ég var komin heim þá kom í ljós að ég var búin að labba örugglega 10 km eða eh :P

Í gær fór ég svo í bíó á nýju twilight myndina með Sophie og Anne. Ég er mjög stollt að segja frá því að ég skildi meirihlutan af myndinni :) Gæti reyndar verið útaf því að ég er buin að lesa bókina en þússt.. það eru mörg ár síðan. Í gærkvöldi fór ég svo með fjölskyldunni í eh mat og skemmtun sem var fjáröflun fyrir kirkjuna þeirra. Get ekki sagt að það hafi verið skemmtilegt. Og maturinn var viðbjóður. Aðalrétturinn leit út eins og vel mygluð brennd pönnukaka og svo ogeðsleg pylsa með. Ég hef greinilega verið með eh ógeðissvip þegar ég var að reyna að pína þessu ofan í mig því að hostmamma min sagði að ég þyrfti ekki að klára, sem ég gerði ekki.


Í dag var svo íslenskur dagur. Elduðum hangikjöt sem mamma sendi og ég stóð mig frábærlega í marengsbakstri, kakan brotanði bara smá mikið en ég og Sophie redduðum því með súkkulaði og skrauti. Buðum fólki sem þau segja að séu svona eins og amma og afi en eru samt ekkert skyld þeim, létum þau giska á hvaða kjöt hangikjöt væri og það kom fullt upp eins og hvalur, hreyndýr og fleira áður en þau loksins giskuðu á rétt. Fullorðnafólkinu fannst hangikjötið gott en ekki litlu stelpunum haha og öllum fannst kakan góð þótt hún leit ekkert fallega út. Og buðum líka uppá harðfisk sem hostmamman var reyndar ekki alveg að týma því hun vill geyma hann þangað til á jólunum, en fólki fannst hann góður líka, þótt yngstu stelpurnar smökkuðu hann ekki haha. Skil þær reyndar vel, efast um að ég mundi smakka harðfisk ef ég vissi ekkert hvað það væri og það væri útskýrt fyrir mér sem þurrkaður fiskur.


Svo á ég afmæli á föstudaginn jeij og hérna er heimilisfangið mitt ef einhverjum langar að senda mér afmælisgjöf :)

Svana Björk Kolbeinsdóttir 

47, rue de Montalivet
07100 Annonay 
France 




 Eða þússt bara ef að einhverjum alltíeinu dettur í hug að senda mér eh skemmtilegt bara útaf því að það er þriðjudagur eða eitthvað. Mér finnst líka voða fínt að skrifa bréf til fólks í skólanum til að hafa eitthvað til að gera, samt pínu vandró þegar ég skrifa eh skemmtilegt og byrja að brosa eitthvað ein í mínum heimi. Þannig að ef einhver vill fá bréf þá bara láta mig vita og aldrei að vita nema ég sendi þér  eitt stykki litríkt og leiðinlegt bréf um ekki neitt :) 


Sko mig, náði meiraðsegja að halda þessu frekar stuttu :)

Bæjóóó

mánudagur, 5. nóvember 2012

Rosastutt Update :)

hæ hæ hæ hæ

Ætla að skrifa smá stutt blogg útaf því að ég er komin til nýju fjölskyldunnar, og er reyndar búin að vera hér í 6 daga. Þetta er semsagt frekar stór fjölskylda en hún samanstendur af 7 einstaklingum.

Pabbinn er stjórnandi á elliheimili hérna rétt hjá og vinnur frekar mikið, og svo það sem mér finnst þvílikt kúl er að hann fór sem skiptinemi til Íslands árið '83 og hefur meirasja farið til Vestmannaeyja.
Mamman sem er frá Sambíu er dagmamma og er með það heima hjá sér þannig að það eru yfirleitt 2-3 börn hérna á daginn og eitt sem grenjar frekar mikið.
Elsta dóttirin heitir Estelle og er 21 árs og býr ekki herna heldur í þorpi sem er fast við bæinn minn og hún er að vinna sem kokkur á veitingastað.
Næst elsta dóttirin heitir Sophie og er 16 ára og er í sama skóla og ég fer í.
Næsta dóttir heitir Anne og er 13 ára og er í collage sem er skolinn á undan lyceé.
Næsta dóttir heitir Catherine og er 10 ára og er líka í collage.
Yngsta dóttirin heitir Nathalie og er 6 ára og mér skilst að hún sé í 2. bekk í primary school.

Ég bý í Annonay sem er ca 18 þúsund manna bær klukkutíma fyrir sunnan Lyon og er svona nokkurnveginn í Suð-Austur-Mið Frakklandi... Ég byrja í skóla á mánudaginn í næstu viku sem er einkaskóli ;P Verð reyndar held ég með 15 ára krökkum í bekk en ok...

Síðan ég kom hingað er ég búin að fara til Valence og einhvern eins annars bæjar og við fórum í eh búðir, voru reyndar flestar eh svaka merkjabúðir (samt ekki merki sem eg þekkji) þannig eg keypti eiginlega ekki neitt, svo fór ég í keilu sem gekk það vel að ég var í næstsíðasta sæti. Fór svo með Sophie í party a föstudaginn þar sem ég þekkti ekki eina manneskju og skildi ekkert hvað var í gangi þannig ég ákvað að vera þvílíkt svöl og láta sækja mig klukkan 11. Í gær fór ég svo í sirkus með hostmömmu minni og 3 af systrunum.


    husið - tek betri mynd seinna
herbergið mitt, hreint og fínt 


Enjá ætla ekki að hafa þetta lengra, fólk er víst ekkert að fíla það þegar ég skrifa löng blogg...
Au revoir ....heeehhe er svo góð í frönsku ;)


xoxo

SVANA BJÖRK ;)

sunnudagur, 28. október 2012

afshelgi;nyfjolskylda og meiragaman

booooonjour

hae, eg aetla ad gera blogg utaf mer leidist, vonandi verda allir tvilikt anaegdir med thad. Samt eins og thid sjaid tha er eg ekki med islenskt lyklabord utaf eg er ekki enntha med net i tolvunni minni thannig ad eg a orugglega eftir ad ruglast eh utaf stafirnir eru a vitlausum stad herna. Eg lika nenni ekki ad fara eftir dogum, adallega utaf eg man ekkert hvad gerdist hvada dag, ekki ad thad se eh merkilegt sem eg er buin ad vera ad gera..
Sidast thegar eg skrifadi var eg ad koma fra Lyon sem var gaman og thad var tvilikt heitt tha; annad en nuna.. Helgina eftir thad minnir mig ad eg hafi farid til Annonay med David fra Usa og vid vorum bara eh ad labba thar um og skoda i budunum. Eg er samt byrjud ad spara nuna. Virku dagarnir eru allir voda eins bara, eg vakna og geri ekki neitt, fer stundum med Francoise uti bud eda eh. Eda ju eg reyndar bakadi bananabraud um daginn, alveg sjalf og thad var allt i lagi med thad.
Einhvern midvikudaginn aetladi eg ad hitta Afs krakkana en svo komust thau ekkert thannig eg for bara ein i baejinn og rolti i nokkrar budir og hjekk svo a mcdonalds i 3 klukkutima utaf thad er fritt WiFi thar haha. En ef eh sem er ad lesa thetta aetlar ad fara a mcdonalds i frakklandi til ad kaupa ser latte tha er ekki haegt ad fa karmellulatte. Thegar eg sagdi thad vid kallinn tha bara horfdi hann a mig og sagdi; Carmel? in the coffee? why? haha. Eg samt reyndi ad panta a fronsku en hann breytti bara yfir i ensku, hefur greinilega fundist franskan min frekar slaem..

Sidustu helgi for eg svo a 6 week camp i Afs sem var haldid i chateau herna rett hja, thott thetta var ekkert neitt svakalega kastalegt hùs, en thad var samt tvilikt erfitt ad rata inni tvi og eg villtist 2x tharna inni, samt sem betur fer ekki ein tvi tha hefdi eg verid hraedd. Eg var i herbergi med stelpu fra italiu og vid vorum svo heppnar ad fa orugglega staersta herbergid. Eg og Isabela maettum reyndar adeins og seint en thad var orugglega i lagi, allavegana ekki sagt neitt vid okkur utad tvi. Thad fyrsta sem eg sa thegar eg kom thangad var stelpa i Volcano kapu, mer fannst thad gedveikt og svo kom i ljos ad hun for til islands sem skiptinemi og lika einn annar strakur sem var tharna thannig eg gat talad helling a islensku thessa helgi; thott eg hafi stundum ruglast haha.  Vid forum oll upp i eh sal eda eh thannig og vid attum ad gera kynningu um landid okkar og fengum spurningar a fronsku sem vid attum ad svara og svo standa fyrir framan alla og segja fra svorunum og thannig. Tharna var mjog fint ad thad var folk sem taladi islensku tvi tha thurftu ekki allir hinir ad vita ad eg thurfti ad lata thyda fyrir mig gjorsamlega hvert einasta ord sem stod a thessu bladi, en eg allavegana gat nokkurnvegin svarad spurningunum og gerdi svo svona presentation a blandadri fronsku og ensku, og teiknadi lika rosa fina mynd af islandi a tofluna til ad merkja stadina inn. Eftir thad attum vid ad gera eins og a namskeidinu heima og skrifa bref til okkar sjalfs sem vid faum tegar vid forum heim, og eg var alveg jafn hugmyndalaus nuna og i juni thannig mitt er ekkert mjog ahugavert.
Svo var matur og eg man ekkert hvad var i matinn, en eg man ad eg nadi ad sulla nidur 2x ( sulladi samtals 6x thessa helgi..). Eg sat a bordi med krokkum fra sudurameriku, bandarikjunum og tekklandi minnir mig og eg eyddi orugglega halfum matartimanum i ad reyna ad utskyra fyrir teim hvernig eftirnofn a Islandi virka, eg held ad allavegana 2 af teim hafi nad ad skilja haha, en thetta er eh sem eg er buin ad reyna ad utskyra fyrir fullt af folki og enginn skilur.
Um kvoldid forum vid svo i eh svaka spes leik sem eg kann ekki ad utskyra og svo voru sumir krakkarnir med atridi, ekki eg. Svo tokum vid video af okkur ollum tala a okkar tungumalum. Um kvoldid attum vid svo ad fara ad sofa kl 12 en aftvi vid erum svo badass tha for meirihlutinn af okkur inni eitt herbergi eh ad tala til 2, svo thogdu alltaf allir thegar hurdin opnadist haha ef thad mundi vera sjalfbodalidi ad skamma okkur ;p
Daginn eftir voknudum vid kl 8.. stud og tha var talad vid okkur um reglurnar ofl og svo skipt i hopa og vid attum ad svara eh spurningum og thannig fjor. Svo var hadegismatur og eftir hann vorum vid bara eh oll ad tala og taka helling af myndum. Svo hitti eg nyju fjolskylduna mina sem virdist vera voda fin ;)

I gaer for eg svo til Annonay i bio a nyju James Bond a fronsku med Isabelu og Kobi fra brasiliu og ghana, eg skildi samt voda litid og thetta var ekki skemmtileg mynd, mer fannst samt rosa gaman ad tau vaeru baedi ad frjosa ur kulda en ekki eg haha. En i dag er snjor sem er alls ekki gaman og hann ma bara drulla ser i burtu helst nuna.  Tvilikt skrytid, a fimmtudaginn var eg ad steikjast ur hita a stuttermabol og nuna er ogedis snjor.

Allavegana a thridjudaginn tha er eg ad fara til fjolskyldu i Annonay, loksins. i fjolskyldunni er pabbi sem for til islands sem skiptinemi, mamma og 5 stelpur sem eru 5, 10, 13,16,21 ara, en thessi elsta byr ekki hja teim. Thau bua i Annonay sem er semi stor baer herna rett hja og er klukkutima fra Lyon. Thad er reyndar fri i ollum skolum i Frakklandi naestu 2 vikur thannig eg byrja bara i skolanum tha, og eg held ad eg se ad fara i einkaskola sem er kul ;)

En aetla ekki ad hafa thetta lengra svo eg drepi ykkur ekki ur lestri eins og sidast

baaaaeeejo

SvanaBjork

fimmtudagur, 11. október 2012

Pinu stort update!


Ætla að byrja á að afsaka mig fyrir bloggleysi, en ég er ekki búin að getað nettengt tölvuna mina í næstum 2 vikur og þetta fína blog er búið að bíða ykkar hérna í svolitinn tíma. Ég fattaði svo í gær að ég gæti fært þetta á milli í flakkaranum en þá kann ég bara ekkert á hann þannig að eg keypti usb lykil í dag.

Miðvikud 19.sept
Fór Í skólann til 12 afþví þannig er það allstaðar í Frakkandi á miðvikudögum. Fór svo með Juliette og Valerie í eh svona hagkaups búð og skemmti mer bara við að máta barnaskó, rosa stuð. Þegar við forum svo aftur heim þá þurfti Juliette að læra þannig ég fór ein niðrí bæ. Kíkti aðeins í búðirnar og ætlaði svo að taka strætó heim, það var búið að útskyra mjög vel fyrir mér hvernig ég ætti að gera það. En ég náði auðvitað að taka vitlausan strætó og rúntaði í honum í rúmlega halftima alveg að deyja úr bílveiki. Ekki gaman.


Fimmtudagur 20. Sept.
Þessi dagur hlýtur að hafa verið alveg hundleiðinlegur útaf ég get enganvegin munað hvað ég gerði.. Fór allavegana í landafræði á ensku þar sem við vorum að læra um global eh og fyrirtæki sem eiga að gera heiminn að þorpi eða eh þannig sniðugt og svo 2 tíma gat þar sem ég reyndi að læra frönsku og svo landafræði á frönsku. Svo fór ég í mat, og það er alltaf svaka hlaðborð eða eh þannig í hadeginu í skólanum, og ég fékk ekkert matarkort þannig eg þarf alltaf að láta eh segja konunni að skrifa nafnið mitt fyrir mig. Eftir hádegi fór ég svo í enskar bókmenntir þar sem ég og Chloé vorum að gera verkefni um ‘Odd Couples’ og við völdum Fríðu og Dýrið.



Föstudagur 21. September
Fór í skólan klukkan 8 í heimspeki tíma, ég hef ekki hugmynd um hvað er í gangi þar og þarf sem betur fer ekki að mæta í alla tímana, annars væri stílabókin mín orðin að listaverki þar sem ég geri voða lítið annað en að teikna í þessum tímum. Fór svo í 2 tíma landafræði tíma á frönsku þar sem þau eru að læra um Rússland og öll kortin sem þau fá snúa að Rússlandi og ég var í svona 10 minutur bara að fatta hvernig kortið snéri. Þau gerðu svo eh verkefni og ég sat og reyndi að þýða spurningarnar með orðabókinni en þær meikuðu 0 sens þannig eg hætti því og gerði ekki neitt. Fór svo í ensku þar sem að voru eh svakalegar debates (rökræður?) um fjölmiðla útaf það er það sem við erum að læra um. Ég er rosa glöð að ég er ein af fáum sem enskukennarinn veit hvað heitir, og hann meirasegja ber nafnið mitt rétt fram. Fór svo í þýsku, á frönsku, ég held þau séu að sagnbeygja, ef að það er orð. Allavegana svona Ég er, þú ert, við erum….
Eftir hádegi var ég svo í gati í 3 tíma og fór með Anne-Lise og eh strak sem eg man ekki hvað heitir niðí bæ útaf okkur langaði að fara í eina snyrtivörubúð, og strakurinn beið fyrir utan haha. Við vorum að tala a ensku inní buðinni og Anne-Lise sagði að eh konur væru að tala um okkur og hvað við værum sætar og svo komu þær og sögðu ‘Bon Voyage’ við okkur. Fórum svo aftur uppí skóla og þá var 2 tíma tónlistartími, ojbara. Þau semsagt læra um Pink Floyd í klukkutíma, svo er pása í 5 minutur og svo syngja þau á frönsku í klukkutíma. Mér leiddist í 2 tíma. Um kvöldið fór ég svo út með Anne-Lise, Elise og 2 öðrum stelpum sem að eg kann hvorki að segja nöfnin á eða stafa. Við löbbuðum eh niðrí bæinn sem var fínt en ég mátti bara vera til 11 þannig að Valerie kom að sækja mig þá.

Laugardagur 22.sept
Fór með Juliette og vinkonum hennar, Charlene & Axelle í lítið Tivoli ca 40 minutum fyrir utan bæinn, það var pinu kalt og heitt þennan dag þannig eg var alltaf að fara úr og í jakkann. Við forum í eh nokkur tæki og eg var rosa stolt að vera búin að fara með í þau öll, svo ákváðu þær að fara í svona víkingabát, ekki sjens að ég færi með í það. Þannig ég beið bara fyrir framan haha. En ég fór samt í stæðsta tækið þarna sem að ég held að sé svipað og sleggjan í smáralindinni nema að það er stærra og hærra. Fórum líka í bíó í tívolíinu á eh teiknimynd sem var í svona 15 min. Við vorum þarna til svona 5 held ég og þá forum við heim til Axelle og húsið hennar er svoo risastórt og flott, vá það er geðveikt og herbergið hennar þvilikt flott líka. Við allavegana forum í Wii þar í eh dansleik sem ég tapaði í útaf þær eru greinilega oft í þessu og kunna þetta utanaf, og ein önnur vinkona þeirra, Camille held eg, kom lika. Svo borðuðum við kvöldmat þar sem var Crepes, og það var fullt af áleggjum þarna og eg vissi ekkert hvað maður átti að gera þannig eg setti sultu og ost og eh og alltieinu voru allir að horfa á mig og spurðu svo hvort þetta væri eh islensk hefð, og eg þurfti að viðurkenna að eg hefði ekki hugmynd um hvað ég væri að gera haha. Við svo ætluðum að horfa á mynd en myndin nottla þurfti að vera með frönskum texta og þær fundu enga góða þannig á netinu þannig við bara forum að sofa.

Sunndagur 23.sept
Vöknuðum um 10 held ég og Valerie kom og sótti mig og Juliette bara stuttu eftir það. Ég fór svo með Valerie í bæinn á eh markað þar sem folk er að selja notaða hluti sem það er hætt að nota, eg keypti ekki neitt en þetta var samt alveg þvilikt stórt svæði sem markaðurinn var á. Við svo löbbuðum framhjá eh kirkju og ég spurði hvort þetta væri Kristin kirkja og þá vildi Valerie endilega sýna mer inní kirkjuna og lika eina aðra og þær voru þvilikt stórar og flottar og allt öðruvísi en í Eyjum.

Mánudagur 24. Sept
Mætti klukkan 10 I skolann þennan dag sem var æði fyrir utan að eg þurfti að taka strætó ein I skolann, stræto bilstjorinn var ekkert rosaglaður þegar eg ýtti á stopp takkann 2 sek áður en eg ætlaði út. Ég fór í ensku og við fengum próf sem var þannig að við áttum að lýsa eh forsíðum á mismunandi blöðum og eh þannig. Allir skrifuðu með svakalegri skrautskrift allavegana eina blaðsíðu á meðan ég skrifaði með pinulitilli og ljótri venjulegri skrift bara rumlega hálfa blaðsiðu, eg held samt að mer hafi alveg gengið vel. Eftir hádegi fór ég svo I ensku fyrir lengra komna þar sem við vorum lika að fara í próf, sem eg vissi ekki af. En profið þar var þannig að við áttum að þyða úr frönsku yfir á ensku. Ég fékk að nota orðabókina en sum orðin voru bara eh bull þegar það var komið yfir á islensku og það voru allavegana 2 orð sem eg hef aldrei heyrt áður þannig að eg skrifaði bara íslensku þýðinguna á þeim, svo gat ég líka ómögulega munað hvernig skurður er á ensku þannig eg skrifaði ‘hole’. Þetta var líka held ég í fyrsta skipti a ævinni sem ég var síðust til að skila prófi. Klukkan 4 fór ég svo í annan tónlistar tíma, með 96 krökkum, við gerðum það nákvæmlega sama nema þau voru að tala um eh annan tónlistarmann og ég litaði blaðið mitt með yfirstrikunarpennum. Reyndar voru brasiliski strakurinn og host systir hans I þessum tima lika þannig eg allavegana þekkti einhvern, og svo var lika ein stelpa sem var að spurja mig fullt og segja mer frá eh siðu til að læra frönsku.




Þriðjudagur 25. Sept
Fór í fyrsta íþróttatímann minn, 2 tíma dansíþrótta tími. Allir voru eh svaka að fíla sig og eg stoð eins og fibbl og vissi ekkert hvað ég ætti að gera þannig eg labbaði bara á eftir vinum minum. Svo áttum við að vera í hópum og búa til dans um eh setningu sem átti að innihalda ákveðnar danshreyfingar? Það gekk svakalega vel, þau höfðu ekki hugmynd um hvernig átti að segja þetta á ensku og ég efast um að ég hafi getað skilið það útaf eg veit ekkert um dans. Þetta smá sem við (þau) sömdum var allavegana ekki flott held ég og eiginlega bara bull. Eftir tíman fór svo einn vinur minn og spurði skolastjórann hvort ég mætti sleppa danstímunum útaf það er of erfitt fyrir þau að útskyra fyrir mer haha. En það skiptir reyndar engu máli lengur. Svo fór eg í ensku þar sem við vorum að gera tounge twistera og fleira, eða þusst þau gerðu þá útaf ég er með svo góðan hreim að eg þarf ekki á þvi að halda.. eða það finnst þeim þótt að ég se með islenskasta hreim sem til er. Eftir hádegi var ég í gati til 4 og átti þá að fara í tónlist með 97 krökkum, en þar sem ég er að deyja úr leiðindum í þessum tímum fékk ég að sleppa því. Labbaði svo á strætó stöðina og sá að ég rétt missti af síðasta strætó þannig ég ákvað að labba heim. Slæm hugmynd. Ég byrjaði nottla á því að taka vitlausa beygju en fattaði það ekki strax, helt bara áfram að labba og þegar ég rakst á Netto og eh annan supermarkað sem eg hafði aldrei séð áður hélt ég bara að ég væri komin of langt og beygði inn næstu götu sem var eh rosa fínt hverfi held eg og vissi að eg væri enganveginn rétt hjá husinu minu. En þá fattaði ég að ég á iPhone og með hjálp frá gps og eftir að hafa labbað inn nokkra vitlausa botnlanga þá komst ég heim.
Um kvöldið fór ég svo með Valerie á fund hjá afs og komst að því að ég er greinilega ekki að gera neitt rétt og ekki nógu góð í frönsku og eh blabla og hafði tvo daga til að breytast annars mundi ég þurfa að skipta um fjölskyldu.

Miðvikudagur 26.sept
Vaknaði klukkan 7:45 við að Juliette var að segja að við værum að fara í skolann eftir 1 min og þær gætu ekki beðið lengur. Veit ekki hvernig eg náði þvi en ehveginn var ég komin útá strætóstöð kl 7:51 þegar strætóinn kom. Mætti samt pínu seint í skólann útaf strætóinn kom kl 8:02 rétt hjá skólanum og þá átti eg eftir að labba upp eina brekku. En ég sagði bara við kennarann að eg hefði ekki fundið stofuna og það var alltilagi. Tíminn á eftir fell niður þannig ég fór með krökkunum í eh herbergi þar sem þau fengu næði til að læra, já þegar timar her falla niður þá nýta krakkarnir tækifærið til að læra, sem er eh sem er ekki gert heima, eða ég geri það allavegana ekki. Eftir það forum við svo í tíma sem ég hef ekki hugmynd um hvað heitir eða hvað er í gangi kennarinn samt hefur verið með svaka brandara þvi krakkarnir voru alltaf að hlægja að þvi sem hann sagði. Klukkan 11 var ég svo búin í skólanum og fór svo eftir hádegi með Juliette niðrí bæ og við forum á bókasafnið og ég fór á posthusið með svakaflott svarbréf til heiðrunar og ég keypti Vampire Diaries á frönsku haha það er svoo asnalegt að horfa á það. Þegar við komum aftur heim horfðum við aðeins á tvd og svo fór Juliette að læra og ég fór að reyna að læra í frönsku sem gengur ekkert neitt æðislega.





Fimmtudagur 27. September
Mætti í skólann klukkan 8 og var rosa dugleg og fann stofuna alveg sjálf, svo var ég buin að bíða I svona 5 min og enginn kennari kominn og enginn úr bekknum minum heldur þannig ég fór á skrifstofuna og sagði að eg vissi ekkert hvert eg var að fara. Strakarnir sem voru að vinna þar skemmtu ser við að reyna að skrifa nafnið mitt á miða sem maður fær til að koma seint og svo alltieinu kom Baptiste vinur minn að sækja mig og sagði að tímin hefði fallið niður og þau væru að læra í eh læruherbergi. Eftir þennan tíma var ég í 2 tima gati ein og ég nennti ekki að lonelyast í skolanum þannig ég fór í turistagöngu um Saint-lo og labbaði uppá kastalarústirnar og tók myndir. Ég kom líka við í bókabúðinni og keypti rosa sniðuga bók sem er fyrir 9-11 ára franska krakka sem eru að læra ensku haha. Svo fór ég í landafræði að læra setningar úr bókinni.
Eftir hádegi voru ég og Chloé svo með presentation af verkefninu okkar um Fríðu og Dýrið og ég held að okkur hafi gengið vel útaf kennarinn commentaði eh á öll verkefnin nema okkar. Eftir skóla fór ég svo heim og komst að því að Afs hefði allan tíman verið búið að ákveða að ég mundi skipta um fjölskyldu og það var ekkert sem ég hefði getað gert til að breyta því. Ég sem var búin að vera þvilikt dugleg að læra I frönsku endalaust þessa tvo daga.







Föstudagur 28. September
Síðasti dagurinn í Lycee Le Verrier.. Fór í heimspeki sem var stuð eins og alltaf. Fór svo í 2 tíma landafræði tíma og klukkan half 10 komst ég að því að við værum að fara í 1.5 tíma próf um Rússland. Yess. Ég sat í svona 10 minutur og skoðaði prófið og miðað við það sem hinir voru að gera áttum við að gera eh ritun um það sem við erum búin að læra. Ég allavegana hafði ekki hugmynd og fór bara að merkja inn lönd á heimskortið sem var á einni blaðsíðunni. Svo ákvað ég að reyna eh smá og skrifaði á frönsku og ensku blandað saman að Rússland væri mjög stórt land sem væri bæði í asíu og evrópu, að moskva væri höfuðborgin og að Rússland ætti landamæri að fullt af löndum. Svo skrifaði ég rosa fínt fyrir neðan ‘Je ne parle pas francais’. Rétti svo upp hönd og kennarinn tók prófið og var þvilikt brosandi að lesa það. Ég allavegana nennti ekki að hanga þarna lengur þannig eg spurði Chloé hvort ég mætti ekki örugglega fara og fór svo bara á bókasafnið að læra frönsku. Svo fór ég í ensku þar sem rökræðurnar frá síðasta tíma héldu áfram og kennarinn leyfði krökkunum að tala saman á ensku um prófið þannig ég komst að því að við áttum að velja eitt topic og skrifa um það… ég gerði næstum því rétt. Svo fór ég í þýsku þar sem krakkarnir fóru í próf en ég var bara að læra frönsku. Eftir hádegi sat ég svo með Anne-Lise og eh stelpum í hennar bekk í læruherberginu útaf þær voru að læra og svo forum við í uppáhaldstónlistartímann minn </3. Þar sem þetta var síðasti dagurinn minn í þessum skóla þá þurfti eg að kveðja folk sem var ekki gaman, og ég náði meirasegja ekki að kveðja alla..mer finnst þetta þvilikt finir krakkar og eg veit ekkert hvort ég mun hitta þau einhverntíman aftur :/
Þegar ég kom heim úr skólanum komst ég að því að ég átti að taka lest til Parísar klukkan 8:26 strax daginn eftir og þaðan til Valence í Suð-mið-austur Frakklandi þar sem ég mun búa. Ég semsagt fer til einnar fjölskyldu þangað til 12. Oktober og sú fjölskylda er vön að taka á móti skiptinemum sem eru í fjölskylduskiptum þannig það er fínt held ég, og svo í okt. Þá fer ég til fjölskyldu sem ég verð hjá þangað til í Júlí vona ég en nuna eru þau að græja og gera allt tilbuið þannig að eg geti komið til þeirra. Ég veit ekkert um þessar fjölskyldur nema að þau annaðhvort búa í Valence eða þar í kring.
En já það eru ekki margir sem geta sagst hafa pakkað niður öllu lifinu sinu ofan í eina ferðatösku.. eg er aftur á móti það heppin að eg er búin að gera það 3x á einum mánuði. Ekki alveg það skemmtilegasta í heimi og taskan min er alveg að rústast og hun er þung.

Laugardagur 29. September
Vaknaði rosa dugleg klukkan 7 og lét restina af dótinu minu I flugfreyjutöskuna og svo skutlaði Valerie mér á lestarstoð rétt hjá saint-lo þar sem eg var svo heppin að fá að bera töskuna mina upp og niður fullt af stigum.. en það er allavegana gott að eg er svona sterk og get léttilega haldið á 30 kilóa tösku.. eða þusst ekki. Ég tók lestina þaðan til Parísar og ég átti sæti numer 27 en það var gangsæti þannig eg settist bara í 25 utaf það var tómt og við glugga. Svo á næstu stoppustöð kom kona með hund og risaferðatösku sem átti sæti 25 þannig eg stóð upp og leyfði henni að setjast og ætlaði svo að sita í minu rétta sæti. En nei þá setti hún hundinn þangað og töskuna fyrir framan þannig eg bara settist í eh annað sæti og vonaði að enginn mundi fatta að eg væri í vitlausu sæti, sem betur fer fattaði það enginn. Þegar ég kom til Parísar beið mín sjálfboðaliði frá Afs með Afs skilti sem hann hélt uppi og mér fannst það fyndið. En hann var rosalega almennilegur og mér til mikillar ánægja hélt hann á töskunni fyrir mig. Við tókum svo metro a aðra lestarstöð og þar fór ég í 2 hæða rosahraða hraðlest sem fer 300km/klst og er hraðasta lest evrópu eða eh þannig. Þegar lestin stoppaði fór ég út án þess að vera 100% viss um að vera á réttum stað en svo alltíeinu kom maður uppaðmér og spurði hvort ég héti Svana, það var pinu creepy en þetta var ss maðurinn sem ég átti að fara með. Ég allavegana fór með honum í bæinn sem þau eiga heima sem heitir Saint Alban D’ay og er pínulítið þorp. Ég átti að vera með þessari fjölskyldu í smástund á meðan það var tekið viðtal o.fl við fjölskylduna sem ég átti svo að fara til. En þessi fjölskylda samanstendur af manni og konu örugglega í kringum 60 ára og stelpu sem er 23 ára.

Sunnudagur 30. September
Vaknaði klukkan 7 útaf ég var að fara á Afs hitting á nammisafni í öðrum bæ og Isabela frá Brasilíu og hostmamma og systir hennar komu að sækja mig klukkan 8. Við keyrðum svo í hinn bæinn og vorum komnar þangað um half 10 minnir mig og í sal við hliðiná safninu hittum við alla Afs krakkana, en ég var að hitta flesta þarna í fyrsta skiptið fyrir utan Roselil, dönsku stelpuna sem ég var með í hóp í París. Við forum svo og löbbuðum hring í kringum safnið og stelpurnar sem ég var með voru rosa glaðar að það var nammi frá þeirra landi þarna (Danmörk&Finnland) en það var ekkert frá Íslandi :/. Svo forum við í eh svona klifurdótarí sem er 12 metra uppí loftinu og eg var rosa dugleg og fór í það, við reyndar villtumst á leiðinni í það og ætluðum aldrei að finna þetta, en svo komumst við að því að þetta var bara í sama húsi og safnið.
Eftir það forum við svo í salinn og það var 3 rétta hádegismatur, rattatouie eða hvernig sem maður skrifar það og eh fleira. Við svo bara sátum þarna að tala í örugglega 2 tíma eða eh en það var samt bara fínt. Það voru reyndar allir að frjósa úr kulda þarna þegar við vorum fyrir utan og allir þvilikt hissa á þvi hvernig ég gæti verið á stuttermabolnum. Svo seinna um daginn fór ég til baka með Isabelu og fjölskyldunni hennar og borðaði kvöldmat með folkinu sem ég var hjá og fór svo snemma að sofa enda að deyja úr þreytu.



Mánudagur 1. Okt  - Fimmtudagur 4. Okt
Fór ekkert í skólann á meðan eg var í Saint Alban þannig ég bara vaknaði þegar ég vaknaði og þá var barnabarn hjónana í pössun hjá þeim sem að er 7 mánaða og grenjar ógeðslega mikið, rosa gaman. Ég allavegana fór með barninu og konunni (treysti mér ekki í að reyna að stafa nafnið hennar) í smá göngutúr um þorpið. Svo seinna um daginn fór ég með hjónunum í biltur um countrysideið þarna og skoðuðum eh 2 litla bæi sem voru dauðari en allt.  Fórum svo á þriðjudeginum til Annonay sem er semi stór bær herna í 10 min fjarlægð, og við löbbuðum eh um þar og forum svo í supermarkaðinn þar, þau eru andjoks með jafnmikið eða meira af svæði í búðinni fyrir ost og við erum með fyrir allar kjötvörurnar og þar í krónunni heima. Daginn eftir leiddist mér mikið þannig ég fór sjálf í þorpið fyrir neðan húsið eh að skoða og leita af pósthúsi sem gekk svona svakalega vel.. þetta er reyndar þvilikt lítill bær þannig ég var ekkert það lengi að finna það, var samt búin að labba örugglega allar göturnar sem btw eru þvilikt litlar og eg efast um að það sé hægt að keyra sumar þeirra á jeppum.




Föstudagur 5.okt – Sunnudagur 7. Okt
Á föstudeginum fór ég með Francoise og Mylene (held að það sé skrifað svona) til Valence sem er 200 þusund manna bær hérna rétt hjá og við forum aðeins að versla. Við forum svo í hádeginu í eh hlaðborðshádegismatarstað í einu malli. Þar mátti maður velja sér forett og eftirrétt en átti svo að panta mat af matseðli, ég hafði ekki hugmynd um hvað neitt þarna þýddi þannig eg fekk mer bara margaritu haha. Svo héldum við áfram að versla aðeins og ég komst loksins í H&M eftir rúmlega 3 mánaða aðskilnað. Ég fór reyndar bara í 3 búðir útaf ég þarf minn tíma í h&m en ég náði alveg að versla pínu mikið. Við forum svo að skoða chateau sem var reyndar allur brotinn en hann frá miðöldum og er uppá fjalli þannig það var þvilikt flott útsyni yfir allt. Notetoself: ekki fara í jellyssandölum í fjallgöngu.
Á Laugardeginum fór ég með nokkrum krökkum úr AFS á svæðinu mínu til Annony til að gera eh. Þetta voru krakkar frá Brasilíu, Usa, Columbiu og svo host systir stelpunnar frá Brasilíu. Við löbbuðum aðeins um bæinn og fengum okkur hádegismat þar. Svo forum við í nokkrar búðir og settumst niður í eh garði þarna. Alltíeinu kom svo eh fullur kall upp að okkur og byrjaði að tala við okkur á frönsku og afþví að ég sagði ekki neitt byrjaði hann að benda á mig og spurði hvaðan ég væri og svo hvaðan allir hinir væri, það var þvílíkt creepy þannig við forum bara á annan stað. Fórum svo fyrir utan bíóið til að gá hvaða myndir væru í boði og sátum svo bara þar að spjalla þangað til að það var sótt okkur.
Á sunnudeginum gerði ég voða lítið, fór svo klukkan 5 með Isabelu frá brasilíu og host systir hennar í bíó í Annony á Taken 2, sem er mynd sem nokkrir aðilar heima bíða spenntir eftir, ég er því miður ekki með hlutverk í henna haha.






Mánudagur 8. Okt – Miðvikudagur 10. Okt
Er búin að vera gera mjög lítið hér, læra í frönsku og láta mér leiðast aðallega. Á mánudeginum labbaði ég niðrí þorpið og labbaði útúr því báðumeginn og labbaði á miðri götunni og þegar það komu bílar þá færði ég mig og vinkaði öllum sem keyrðu framhjá mér J Á þriðjudeginum átti Mylene afmæli og systir hennar og hennar born komu í heimsókn og borðuðu hádegismat með okkur, forrétturinn mér til mikillar gleði voru sniglar. OJ. Þetta leit ógeðslega út og ég get ekki ímyndað mér að þetta sé gott á bragðið, ekki sjens að ég mundi smakka. En greyið strákurinn, hann er 3 ára og var alltaf að biðja um meiri og meiri snigla en fullorðna fólkið var ekki alveg á því að týma að gefa honum með sér, svo var hann geðveikt krúttlegur að leika sér með bíl og var með tilheyrandi læti og allir voru að skamma hann fyrir það.
Seinnipartinn labbaði ég svo með Francoise og Patrice í skóginn sem þau EIGA, og þau voru að týna sveppi og hnetur (chestnuts..man ekki islenska orðið, kastaniuhnetur?).
Í gær eyddi ég svo mörgummörgum klukkutímum í að reyna að láta þetta blogg inná flakkarann enn allt kom fyrir ekki, fór þá bara aðeins að labba í þorpinu.
Í dag fór ég til Lyon sem var geðveikt, þvílíkt flott þar og fulltfullt af búðum. Löbbuðum helling um og ég tók fullt af myndum líka og það var heitt úti. En eg nenni ekki að skrifa meira um það núna. Mér fannst samt æðislegt að vera í Lyon, í H&M og svo alltíeinu byrjaði 'We Are Never Ever Getting Back Together' með Taylor Swift að spila. Það var geðveikt, og eitt en. Ég er í sama landi og One Direction. Það er kúl.





En fyrir alla sem langar að vita þá er ég núna stödd rétt fyrir ofan þorp sem heitir St.Alban D'ay og er staðsett nokkurnveginn í suð-austur-mið Frakklandi (meikarsens right?). Er allavegana ca klukkutíma fyrir neðan Lyon. Ég er hér hjá bráðarbirgðarfjölskyldu sem tekur oft að sér skiptinema í smá tíma á meðan þau eru að skipta um fjölskyldur og þannig. Ég fór frá St. Lo 29. september og ég ætla ekki að fara útí það hér afhverju.. og ég er búin að vera hér síðan. Það var fjölskylda sem ég átti að fara til í bæ 3 tíma frá hér en það kom í ljós í gær að ég mun ekki fara þangað vegna þess að AFS samþykkir þau ekki sem fósturfjölskyldu. Afs er núna að vinna í að finna fjölskyldu handa mér, og á meðan verð ég hér og fer ekki í skólann þangað til. Þannig ef að eitthvert ykkar veit um rosa næs og skemmtilega fjölskyldu í Frakklandi sem vill taka að sér svakalega frábæran íslending þá megiði endilega láta mig vita ;)

Og ef einhver er svakalegur tölvusnillingur (mac) og getur sagt mér hvað þetta þýðir þá væri það geðveikt, því það er ekki gaman að vera ekki með net í tölvunni minni og að vera alveg að vera búin með netið í símann:
       'Could not join "nafn á router".
        A connection timeout occurred.'


Enjá ef þú ert búin/n að lesa þetta þá ætla ég að vona að þetta hafi verið mjög ánægjulegur tími fyrir þig sem fór í að lesa þetta því að ég veit að þetta hefur tekið langann tíma þar sem þetta eru 7 bls í word. Ég reyni svo að láta ekki líða svona langann tíma þangað til ég blogga næst.

Au Revoir
Svana Björk !r. OJ. þetta börn s allir hinir væri, það var þvþær væru stopp





þriðjudagur, 18. september 2012

Ný fjölskylda ofl.

12.09.12
Fór bara í tvo tíma þennan dag, sögu+landafræði og og var svo búin í skólanum klukkan 10. Þá fóru krakkarnir að gera eh verkefni inná bókasafni þannig ég var bara eh í tölvunni þar að láta mér leiðast því það má ekki fara á fb þar. Svo fór allt fólkið sem ég þekki útaf þau búa í öðrum bæ þannig ég fann brasilíska strákinn sem er hér með Afs líka og fór með honum og host systir hans í mat. Ég held að honum gangi aðeins betur þar sem hann talar alveg frekar góða frönsku. ( finnst mér. ) Ég ákvað svo um eittleytið eða eh að ég nennti ekki að hanga ein í íbúðinni og fór útí bæ. Ein. Ég villtist ekki!! og ég er pínu stolt af því.
Minnisvarði held ég í miðbænum


Ég semsagt get ekki sagt ennþá að ég sé ekki búin að eyða neinum pening í Frakklandi þar sem að ég verslaði í fyrstu búðinni sem ég fór í. Það er því miður ekkert mall í bænum mínum, en það er verslunargata sem er alveg pínu löng og það eru nokkrar góðar búðir þar. Hinumegin við götuna eru svo eh kastalarústir skilst mér. Fyrir neðan verslunargötuna er svo á og hinumegin við hana sýndist mér vera bíó, lestarstöð og fleira. Bærinn sem ég bý í heitir Saint-Lo og samkvæmt fólkinu hér er þetta smábær (20þús manns) og þeim finnst hann flestum vera ljótur. Ég er svosem ekki búin að sjá neitt mikið af bænum en hann er alveg alltilagi og mér finnst vera fullt af fólki hér. og ég kann ekki að fara yfir götuna hérna, þetta er verra en í Reykjavík. Ég fór líka í bókabúð til að kaupa mér stílabók.. þá er það bara eh sem er ekki til. Það er annaðhvort eh svaka spes bækur sem allir eru með sem eru með þvílíkt þéttum línum fram og tilbaka og svo í hina áttina pínu breiðum línum.. eða stærðfræðibækur. Ég keypti bara stærðfræðibók, útaf hún var til í bleiku. Svo eru líka flestir hér með blekpenna með svona oddi eða eh á endanum, ég kann ekki einusinni að kveikja á þannig, ég held mig bara við litríkupennana mína síðan í fyrra.

Ég er búin að kynnast milljón mörgu fólki hér, eða þússt verið kynnt fyrir.. og svona rúmlega 10 sekundum eftir að ég veit hvað það heitir þá er ég búin að gleyma nafninu. Þannig allt í allt eru kanski 5 fólk sem ég actually man hvað heitir, og það eru allt léttu nöfnin sem ég kann að segja.


Welcome fjölskyldan

Herbergið mitt í skólanum
     

bleikt og fint

13.09.12
Fór í skólann í sögu+landafræði á ensku og það var fínt því þá skildi ég eh. Var svo í gati í 2 tíma útaf ég þarf ekki að mæta í löngu heimspeki tímana. Ég ætlaði að fara upp í íbúðina en það var læst þannig ég sat eh ein á ganginum útaf allir sem ég þekki voru í tíma. Svo loksins sá ég eina stelpu sem eg þekkji og sat þá bara hjá henni í pínu þangað til hún þurfti líka að fara í tíma. Þá ákvað ég að reyna að redda mér skólabókum, fór á bókasafnið og þurfti að skrifa nafnið mitt og bekkinn til að fá bækur, ég hafði nottla ekki hugmynd um hvað bekkurinn minn heitir.. en hann heitir allavegana 701, eða er numer það eða eh. Fékk svo helling af bókum og þær eru allar svona eins og enskubækurnar heima, með litríkum textum og fulltfullt af myndum. Ég hélt þá bara áfram að gera ekki neitt þangað til ég fór í sögu+landafræði á frönsku, þau eru að læra um Rússland skildist mér og voru að merkja inná kort á meðan ég var að teikna upp stundatöfluna mína. Svo fór ég í 2 tíma hádegismat og svo enskar bókmenntir þar sem við erum að fara að gera eh verkefni sem við verðum svo með kynningu á. Verkefnið er um 'Odd Couples' semsagt við eigum að velja tvo fólk sem eru skrýtið par.. mér finnst pínu eins og ég sé stundum í 7 bekk eða eh.

Eftir skóla bað ég svo eina stelpu um að fara með mig í símabúðina hér til að redda mér frönsku simkorti, það gékk vel. Við biðum örugglega í svona hálftíma eftir aðstoð og svo töluðu þau eh við gæjann og það kom í ljós að ég þarf að koma með vegabréfið mitt og vera komin með almennilegt heimilisfang til að geta skráð mig og svo vissi kallinn ekkert hvernig hann ætti að græja fyrir mig útaf ég er ekki frönsk. Ég hélt að kortið mitt væri nóg sem skilríki en hann horfði á það eins og hann hefði aldrei séð kort áður.. Ég er þá bara ennþá með íslenska símann og numerið þangað til ég fæ aðra fjölskyldu held ég, eða það er það sem krakkarnir sögðu að ég ætti að gera.
Í matnum fór ég niður í skólann og þar voru eh krakkar sem ég held að seu 93 og 94 og búa í skólanum. En allavegana ég borðaði með þeim og þau töluðu fína ensku þannig ég gat talað aðeins við þau.

14.09.12
Fór bara í skólann til 11 þennan dag útaf svo fór ég með welcome fjölskyldunni í húsið þeirra nálægt Tours. Ég tók lest með eh enskukennara til Caen og fór þar með Anne í nokkrar búðir, redduðum mér frönsku simkorti og númeri og svo keyrðum við í húsið þeirra. Vil taka það fram að ilmvatnsfjölskyldan mín stækkaði um einn í þessari ferð :) Við vorum komin í húsið um kvöldið og það var ALLT útí köngulóm þarna, ég svaf í öllum fötunum með kveikt ljósið, þótt ég reyndar hafi ekki sofið mikið. Ég hitti þarna eina dóttur þeirra og vinkonu hennar og þær eru eh svaka hestagjellur og búnar að keppa í fullt af keppnum. 

15.09.12
Vaknaði og var að frjósa úr kulda útaf það voru engir ofnar í húsinu. Svo fór ég með Anne og stelpunum á eh hestaleikvang eða hvað sem það heitir og þær voru að æfa hestana þar fyrir keppni sem er held ég næstu helgi, ég var svakalega áhugasöm um allt þetta hestadæmi, það var ógeðslega heitt þennan dag líka. Við fórum svo aftur í húsið og ég var eiginlega allan tíman að spila á píanóið þarna því eg hafði ekkert annað að gera. Um kvöldið fór ég svo með í matarboð hjá eh fólki sem welcome foreldrarnir voru að vinna með í sama skóla. Það voru örugglega 10 kennarar þar og svo tvær stelpur sem töluðu enga ensku. Ég held að þetta hafi verið svona ekta franskt matarboð, við allavegana byrjuðum að borða kl 9 og vorum ennþá við borðið kl 12. 

16.09.12
Vaknaði og fékk hadegismat með fólkinu og fór svo að taka saman draslið mitt. Spilaði svo aðeins meira á píanóið, rosa gaman fyrir fólkið að heyra alltaf sama lagið aftur og aftur útaf það er það eina sem ég kann ánþess að vera með nótur. Svo um 3 byrjuðum við að keyra aftur til baka. Þegar við komum aftur til Saint-Lo þá fór ég að pakka niður því ég var að skipta um fjölskyldu.

Húsið í Tours

Hitt húsið i Tours

mer skilst að þetta sé listagalleri i skolanum

bleikur gangur

herbergi með sófum og eh

svaka listaverk í skólanum

þar sem maður fer í íbuðina sem eg var í

17.09.12. 
Mætti í skólann klukkan 10 því ég þarf ekki að fara í löngu heimspeki tímana og var í skólanum til 4 og fór þá bara upp til að klára að pakka draslinu mínu, ekki það léttasta í heimi því ég er með mikið drasl. Klukkan 8 kom svo nýja fjölskyldan að sækja mig. Fjölskyldan er reyndar bara kona sem heitir Valerie og dóttir sem heitir Juliette og er jafngömul og ég. Við keyrðum svo í húsið þeirra sem er líka í Saint-Lo, það tekur 5 minutur að fara í skolann í strætó og ca. 15 min að labba. En eg talaði við þær og við borðuðm kvöldmat og svo fór ég bara að sofa. Þær sögðu mér líka að þær fara alltaf í sund eitt kvöld í viku, og eins og ég er svakalega mikil sundmanneskja, eða þusst ekki, þa langar mig enganveginn að fara í sund einusinni í viku. 

Ég var semsagt hjá welcome fjölskyldu og það gekk það vel að redda mér alvöru fjölskyldu að það voru 3 fjölskyldur sem vildu fá mig og Afs held ég valdi og ég endaði hjá þessari sem ég er hjá núna. 

18.09.12. 
Þurfti bara að fara í einn tíma klukkan 2-4 útaf það féllu niður tímar hjá Juliette þannig ég þurfti ekki að mæta heldur. Við samt fórum í skólann klukkan half 12 til að borða þar og eh, biðum reyndar í strætó skylinu frekar lengi útaf hún ruglaðist eh á tímanum. En það var samt alltílagi, við töluðum bara á meðan og ég komst að því að hún hlustar líka á Taylor Swift og One Direction og horfir a Vampire Diaries mér til mikillar gleði :) Við borðuðum svo í skólanum og fórum svo í eh annan skóla til að hitta vinkonur hennar sem eru þar, þar sá ég í fyrsta skipti í Frakklandi stelpu í íþróttabuxum í skólanum, sem er held ég voða óalgengt hér. Fór svo í 2 tíma bókmenntatíma á frönsku sem var ekki gaman því ég skildi ekki orð. Núna er ég bara heima á meðan Juliette og Valerie fóru í sund og ég er að klára að taka úr töskunum og koma mér fyrir. 

Ég er svo held ég um helgina að fara með Juliette og vinkonum hennar í eh litið tivoli sem er herna rétt hja þannig það verður vonandi gaman.. og eg veit ekkert hvenær eg nenni næst að skrifa. 

Nyja herbergið mitt 

ísland ftw..